Verð og leigutímabil
Eitt gjald fyrir allan veturinn
Fyrir vetrargeymsluna er greitt eitt gjald sem innifelur leigu á geymslustæði frá hausti og fram á vor. Leigutímabilið er frá 1. september og fram að fyrstu helginni í maí árið eftir.
Hvernig verðið er reiknað
Verðið miðast við heildarlengd þess sem geymt er. Mesta lengd er mæld frá fremsta hluta beislis að aftasta hluta vagnsins.
Allur fastur búnaður sem stendur út fyrir vagninn, svo sem hjólagrind eða burðargrind, telst með í heildarlengdinni.
- Fellihýsi / tjaldvagn
- 19.000 kr. á metra
- Hjólhýsi
- 22.000 kr. á metra
- Bíll eða annað
- 22.000 kr. á metra
Við mælum vagninn þegar hann kemur inn í hús og rukkum einfaldlega eftir raunstærð.
Bókun og staðfesting á geymsluplássi
Vetrargeymslan hefur verið uppseld ár hvert. Fyrri leigutakar eru því hvattir til að staðfesta geymslupláss sitt tímanlega og innan þess frests sem þeim er gefinn.
Leigutímabilið
- Móttaka vagna
- 20. ágúst – 30. september
- Leiga hefst
- 1. september
- Geymslan lokar
- 1. október
- Afhending að vori
- Fyrsta helgin í maí
Eftir 1. október er ekki tekið á móti vögnum eða öðrum munum til geymslu. Nánar um afhendinguna.
Skilmálar í stuttu máli
- Skráning gildir fyrir einn vagn og eitt tímabil, inni í upphituðu rými.
- Enginn aðgangur er að vagninum meðan hann er í geymslu.
- Greitt er með greiðsluseðli í heimabanka á kennitölu skráningaraðila.
- Vagninn skal vera í ökufæru ástandi og á skráningarnúmeri.
- Gaskútar og rafgeymir skulu fjarlægð og vatnskerfi tæmd fyrir afhendingu.
- Geymslan er ekki tryggingaraðili — eigin trygging vagnsins þarf að vera í gildi.
- Vagninn er mældur við komu og rukkað eftir raunstærð.
- Sé fullbókað heldur biðlisti röð eftir skráningartíma.