Leiðarlýsing
Leiðin að Sólbakka
Sólbakki er í Borgarfirði, um klukkutíma akstur frá Reykjavík. Fylgdu skrefunum hér að neðan — síðasti spölurinn er ómerktur á kortum.
Hnit: 64.678988, -21.461970 · Sólbakki, Brúarreykir, Borgarbyggð
Ekið frá Reykjavík norður þjóðveg 1 í gegnum Borgarnes.
-
Baulan Komið er að versluninni Baulan á hægri hönd, sem stendur á gatnamótum þjóðvegar 1 og þjóðvegar 50 (Borgarbraut). Þar er beygt til hægri inn á Borgarbraut.
-
Ekið er eftir Borgarbraut í u.þ.b. 10–11 km. Þá fer að bera fyrir augum skógi vaxið klettabelti sem rís upp úr landslaginu.
-
Skiltið Til hægri er skilti með áletruninni „Brúarreykir, Sólbakki, Laufskálar“. Þangað er beygt til hægri.
-
Ekið í u.þ.b. 1 km. Þá er komið að torfu þar sem nokkur hús standa. Sólbakki er á vinstri hönd.
-
Hliðið Keyrðu aðeins lengra og þá blasir hliðið við á vinstri hönd. Farðu inn um hliðið.
-
Skildu vagninn eftir á túninu Finndu stæði fyrir vagninn á túninu og skildu hann eftir þar. Við tökum við og keyrum vagninn inn í sitt stæði þar sem hann verður út leigutímann.
Þarftu að láta vita af þér?
Hringdu eða sendu línu ef þú kemur utan opnunartíma eða ratar ekki.