Ferðavagnageymslan Sólbakka

Upphituð vetrargeymsla fyrir ferðavagna

Þú kemur með vagninn og afhendir hann starfsmönnum geymslunnar. Þeir sjá um að koma honum fyrir á geymslustæði þar sem hann stendur inni í hita fram á vor.

Innanhússupphitað rými
1. septleigutímabil hefst
Fyrsta helgi í maíleigutímabili lýkur
24/7myndavélavöktun

Hvað er innifalið?

  • Upphitað geymslustæði innanhúss.
  • Þú kemur með vagninn og afhendir hann starfsmönnum geymslunnar.
  • Starfsmenn sjá um að koma vagninum fyrir á geymslustæði.
  • Geymslan er á lokuðu og myndavélavöktuðu svæði.

Gott að vita

  • Geymslusvæðið er aðeins opið fyrir móttöku vagna á haustin og afhendingu þeirra á vorin.
  • Enginn aðgangur er að vagninum meðan hann er í vetrargeymslu.

Vagninn er afhentur að hausti og sóttur aftur á fyrirfram ákveðnum tíma að vori.

Afhending á haustin

Tekið er á móti ferðavögnum og öðrum munum til geymslu eftir samkomulagi frá 20. ágúst til og með 30. september ár hvert.

Eigandi getur því afhent vagninn þegar síðustu ferð sumarsins er lokið, svo lengi sem afhendingartími hefur verið ákveðinn fyrirfram.

Allir vagnar skulu hafa verið afhentir eigi síðar en 30. september. Geymslan lokar 1. október og eftir þann tíma er ekki tekið á móti vögnum eða öðrum munum til geymslu.

Undirbúningur vagnsins

  • Gaskútar fjarlægðir og rafgeymir aftengdur.
  • Vatnstankar, lagnir, salerni og vatnshitari tæmd.
  • Gluggum, lúgum og hurðum lokað tryggilega.
  • Munir sem þú þarft í vetur teknir úr vagninum.

Nánar í skilmálunum. Geymslan getur neitað að taka við vagni sem ekki hefur verið undirbúinn.

Tilbúin/n að ganga frá stæðinu?

Vetrargeymslan hefur selst upp ár hvert.

Bóka stæði Leiðin að Sólbakka